Öryggisstefna


Tryggjum öryggi starfsmanna

Það er stefna Ístaks:



Að farið sé í einu og öllu eftir gildandi lögum og reglugerðum um öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál á vinnustöðum og að allir sem eiga erindi á vinnusvæði Ístaks fylgi öryggisreglum Ístaks.


Að tryggja öryggi starfsmanna með þeim árangri að vinnustaðirnir séu slysalausir.


Ístak leggur áherslu á að áhætta sé metin í allri starfseminni og gerð sé öryggisgreining verkþátta fyrir helstu verkþætti.


Að hafa í starfi þjálfaða starfsmenn sem veita vinnustöðum ráðgjöf og tilsögn í vinnuverndar- og öryggismálum.


Að hafa í starfi menntaða/þjálfaða stjórnendur við stjórnun öryggis- og vinnuverndarmála á sérhverjum vinnustað.


Að veita starfsmönnum fyrirtækisins nauðsynlega þjálfun þannig að þeir geti starfað án þess að stofna eigin heilsu eða annarra í hættu.


Að ábyrgð stjórnenda sé skýr og allir starfsmenni viti að öryggi á vinnustað sé forgangsmál.


Að starfsmenn sem verði fyrir eða séu vitni að atburði sem næstum veldur slysi á fólki, heilsutjóni eða eignartjóni tilkynnir það skv. leiðbeiningum.


Að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi sem jafnan sé í samræmi við félagslega og tæknilega þróun í þjóðfélaginu.

  Þessum árangri hyggjumst við ná með því að:


  • Að útbúa og viðhalda skriflegu kerfi sem lýtur að stjórnun öryggis- og vinnuverndarmála.


  • Gera áhættumat vegna þeirra starfa sem unnin eru hjá fyrirtækinu og vinna að stöðugu endurmati á hættumati.


  • Viðhalda atvika og slysaskráningu sem er miðlæg og opin öllum starfsmönnum, greina orsakir slysa.


  • Greina orsakir slysa og óhappa og gera nauðsynlegar umbætur svo að sambærilegur atburður endurtaki sig ekki.


  • Starfsmenn hljóti nauðsynlega öryggisþjálfun og séu meðvitaðir um öryggi sitt og annarra starfsmanna.


  • Allir starfsmenn noti viðeigandi öryggisbúnað.


  • Að unnið sé að stöðugum umbótum í öryggis-, heilsu – og vinnuverndarmálum.


  • Nauðsynlegar viðbragðsáætlanir séu gerðar fyrir hvert verk og séu sýnilegar öllum starfsmönnum.


  • Aðbúnaður starfsmanna á verkstað uppfylli kröfur laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.