Fréttir

20. maí 2026
Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafvæðingu í starfsemi sinni, þ. á m. við efnisvinnslu í Stapafellsnámu. Í námunni er nú unnið með 100% hreinni íslenskri raforku, sem er stórt skref í átt að sjálfbærari rekstri félagsins. Umfangsmikil uppbygging hefur orðið á innviðum rafmagns á svæðinu og hefur m.a. verið tekin í notkun ný 1.250 Ampera heimtaug, settur hefur verið upp sérstakur heimtaugargámur fyrir hleðslustöð og dreifingu raforku innan svæðisins auk þess sem komið hefur verið fyrir 200 kW DC hraðhleðslustöð til hleðslu á vinnuvélum, svo sem hjólaskóflum og dráttarbílum. Mölun steinefna með rafmagni eingöngu hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg en kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin auk þess sem rafknúin LiuGong hjólaskófla annast efnisflutninga að og frá brjótum. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem efnisvinnsla af þessu tagi er framkvæmd með þessum hætti hér á landi, þ.e. að fullu rafknúin. Með rafvæðingu efnisvinnslunnar er dregið umtalsvert úr umhverfisáhrifum af námvinnslu á svæðinu og má áætla að við vinnslu um 30.000 m³ af efni sparist um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti sem samsvari losun á um 201 tonni af CO2. Reynslan af rafdrifinni LiuGong 870 hjólaskóflu hefur reynst afar góð og hefur vélin staðið undir öllum væntingum í krefjandi aðstæðum við námuvinnsluna. Fram undan eru jafnframt frekari áfangar í rafvæðingu starfseminnar en um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með tilkomu hans verður unnt að flytja efni úr námunni með innlendri, endurnýjanlegri orku og verður efnisvinnsla í námunni þá að fullu rafknúin, þ.e. allt frá vinnslu til afhendingar.

18. maí 2026
Miðvikudaginn 13. maí 2026 náðist stór áfangi í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver þegar holplötur sem mynda þak stærsta spennarýmis Safnstöðvarhússins voru hífðar á sinn stað. Með því er nú komið þak á allt húsið. Safnstöðvarhúsið gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu virkjunarinnar en þar verður meðal annars komið fyrir 200 tonna spennubreyti sem tekur við orku frá vindmyllunum og tengir hana áfram inn á háspennudreifikerfið. Undanfarnar vikur hefur verið mikill kraftur í framkvæmdunum og hafa starfsmenn Ístaks og undirverktakar unnið þétt saman að því að ná þessum mikilvæga áfanga. Af því tilefni var haldin grillveisla fyrir allt starfsfólk á verkstað þar sem fagnað var góðum árangri í sól og blíðu — og meira að segja vindurinn í Vaðöldu tók sér stutta pásu þann daginn.

8. maí 2026
Ístak og Aarsleff hafa hafið mikilvægan verkþátt við byggingu Fossvogsbrúar þar sem staurar í undirstöðum brúarinnar eru reknir niður í klöpp. Um er að ræða umfangsmikla vinnu á landi og sjó sem leggur grunninn að burðarvirki brúarinnar og markar tímamót í framkvæmdinni. Verkið felst í niðurrekstri staura sem tryggja stöðugleika og burðargetu brúarinnar en aðstæður í framkvæmdinni gera miklar kröfur til nákvæmni og gæða. Undirbúningsvinna hefur staðið yfir um nokkurt skeið og með þessum áfanga farið að sjá áþreifanlega móta fyrir mannvirkinu. Framkvæmdir ganga vel og vinna við undirstöður mun halda áfram á næstu vikum samhliða öðrum verkþáttum verkefnisins.

4. maí 2026
Ístak hefur nú gefið út sína fyrstu sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á rekstrarárinu 2024/25. Sjálfbærniskýrslugerðin verður eftirleiðis árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við sjálfbærnimarkmið félagsins og vonir þess um frekari árangur á því sviði. Sjálfbærniskýrslan inniheldur upplýsingar um umhverfisþætti, félagslegaþætti og stjórnarhætti auk upplýsinga er varða EU taxonomy vegna reksturs félagsins, ásamt því að greina frá helstu markmiðum þess um frekari árangur á sviði þeirra þátta. Sjá skýrslu hér .

17. apríl 2026
Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum.
Um er að ræða einn umfangsmesta samning se

23. febrúar 2026
Í gær fór fram formleg vígsla nýs hjúkrunarheimilis Hrafnistu að Boðaþingi í Kópavogi, vígsluathöfnin var hin glæsilegasta og margt var um manninn. Með nýrri byggingu bætast við 64 hjúkrunarrými og eru þau nú 108 talsins á staðnum. Byggingin er um 4.300 m² að stærð og hófust framkvæmdir í apríl 2023. Ístak var alverktaki, og verkkaupar voru Framkvæmdasýsla ríkisins (FSRE) og Kópavogsbær. Ístak er stolt af því að hafa staðið að byggingu þessa nútímalega og vandaða heimilis sem mun bæta þjónustu við eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Við óskum ríkinu, Kópavogsbæ, Hrafnistu og að sjálfsögðu heimilsfólki og starfsfólki til hamingju með nýtt og fallegt hjúkrunarheimili og þökkum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf.

17. október 2025
Ístak og bæjaryfirvöld í Nuuk hafa náð samkomulagi sem tryggir opnun stærsta skóla Grænlands haustið 2026. Skólinn, sem stendur við aðalgötuna í hjarta Nuuk, er eitt umfangsmesta verkefni sem íslenskt verktakafyrirtæki hefur tekið að sér erlendis. Byggingin, sem er í sjö samtengdum húsum og að flatarmáli um 18.000 fermetrar, var reist í alverktöku af Ístaki, með Verkís sem verkfræðihönnuð. Skólinn mun hýsa 1.200 grunnskólanemendur og 120 leikskólabörn. Utan skólatíma verður húsnæðið nýtt sem menningar- og félagsmiðstöð bæjarbúa. Byggingarframkvæmdir hófust eftir að samningar voru undirritaðir í desember 2019 fyrir 615 milljónir danskra króna, eða um tólf milljarða íslenskra króna. Vegna heimsfaraldurs Covid-19 og ágreinings um brunavarnir tafðist opnun skólans, en nú hefur samkomulag náðst um uppsetningu vatnsúðunarkerfis í öllum byggingum. Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, segir þetta mikilvæg tímamót fyrir alla aðila: „Það er náttúrlega rosalega erfitt að horfa á svona byggingu standa auða, sérstaklega þegar þörf er á henni. Þess vegna hefur þetta bara verið mjög erfitt – og erfitt fyrir samfélagið allt á Grænlandi að horfa upp á tóma byggingu þarna fyrir tólfhundruð börn. Við fögnum því gríðarlega að lausn sé nú fundin.“











