Fjármálasvið


Fjármálasvið

Fjármálasvið ber ábyrgð á heildarstjórnun fjármála félagsins og tryggir gæði fjárhagslegar upplýsinga, að þær séu tímanlegar og nýtist til upplýstrar ákvarðanatöku. Sviðið sinnir m.a. bókhaldi, fjárstýringu, uppgjöri og áætlanagerð, auk þess að veita stjórnendum greiningar og yfirsýn yfir rekstur.

 

Fjármálasvið er lykileining í rekstri félagsins sem sameinar fjármálastjórnun, rekstrarstuðning og sérfræðiráðgjöf. Með samvinnu ólíkra deilda tryggir sviðið skilvirkni, gagnsæi og traustan grunn fyrir ákvarðanatöku og áframhaldandi þróun fyrirtækisins.

Hlutverk og einingar

Innan sviðsins starfa sérhæfðar deildir sem sinna lykilhlutverkum á borð við reikningshald, kostnaðareftirlit, lögfræði, upplýsingatækni ásamt markaðs- og viðburðamálum. Saman styðja þessar einingar við kjarnastarfsemi félagsins og daglegan rekstur.

  • Reikningshald

    Sér um bókhald félagsins, fjárhagslegar færslur, uppgjör og innri og ytri skýrslugerð.

  • Fjárstýring

    Annast innheimtu útistandandi krafna og greiðslu reikninga, auk umsýslu tengdri fjárstýringu.

  • Kostnaðareftirlit

    Veitir stjórnendum verka stuðning við gerð og eftirlit með fjárhagsáætlunum. Fylgist með kostnaði verkefna og tryggir að rekstur sé í samræmi við áætlanir og markmið. 

  • Samningastjórar

    Veita stjórnendum og verkefnum félagsins lögfræðilegan og samningatengdan stuðning, bæði gagnvart verkkaupum, undirverktökum og birgjum. 

  • Skrifstofustjórnun

    Styður við innra og ytra markaðsstarf félagsins, annast kynningarmál og sjá um miðlun upplýsinga í gegnum vef, samfélagsmiðla og annað efni ásamt almennri skrifstofustjórnun

  • Upplýsingatækni

    Sér um rekstur, stýringu og öryggismál upplýsingatæknikerfa félagsins. 

Tengiliður

Alexander Kristján Guðmundsson

Framkvæmdastjóri fjármála