Mannauðsdeild
Jákvæð fyrirtækjamenning og virðing
Markmið mannauðsdeildar Ístaks er að laða að og halda í hæft starfsfólk, og tryggja að mannauðsstjórnun sé ávallt í samræmi við gildi fyrirtækisins.
Við leggjum áherslu á að styðja vel við framkvæmd verka til að viðhalda góðri helgun, starfsánægju og framúrskarandi árangri á öllum sviðum.


Okkar áherslur í mannauðsmálum
Mannauðsdeild vinnur náið með stjórnendum að stöðugum umbótum og ræktun á jákvæðri fyrirtækjamenningu, þannig að Ístak sé ávallt eftirsóknarverður vinnustaður.
Ráðningar og móttaka
Við leggjum mikið upp úr faglegu ráðningarferli og hlýlegri móttöku nýliða. Við fylgjum starfsfólki eftir allan starfsferilinn og veitum stjórnendum öflugan stuðning, meðal annars við regluleg starfsmannasamtöl og utanumhald.
Jafnrétti og virðing
Við tryggjum öllum starfsmönnum jöfn tækifæri og gætum þess að starfsumhverfið einkennist af virðingu. Við fylgjumst náið með framþróun í vinnurétti og tryggjum að öllum lögum, reglum og jafnréttisviðmiðum sé fylgt til hins ýtrasta.
Fræðsla og starfsþróun
Stöðug þróun er okkur mikilvæg. Við höldum úti markvissri fræðsluáætlun og nútímalegum rafrænum fræðsluvettvangi þar sem starfsfólk getur eflt þekkingu sína og færni.
Aðbúnaður og hreyfanleiki
Ístak sinnir stórum verkefnum vítt og breitt. Við aðstoðum starfsfólk við flutning á milli landshluta og landa, og bjóðum upp á gistimöguleika á höfuðborgarsvæðinu þegar við á.
Örugg og nútímaleg þjónusta
Innan deildarinnar starfar launadeild sem tryggir réttar launagreiðslur og gagnsæi. Við nýtum upplýsingakerfi til að halda utan um allt frá tímaskráningum til fræðslu og ráðninga.
Tengiliður



