Verkið samanstendur af fjórum meginhlutum. Í fyrsta lagi er um að ræða nýbyggingu norðvestan við hús sem fyrir var. Byggingin inniheldur íþróttahús og sundlaug, hátíðarsal og aðalanddyri. Í öðru lagi er félagsmiðstöð í nýbyggingu austan við núverandi hús. Í þriðja lagi er létt viðbygging sem kemur ofan á miðálmu núverandi húss og inniheldur nýja stjórnunardeild. Í fjórða lagi er endurgerð núverandi húss að innan ásamt lítilsháttar ytri breytingum. Endurgerðin er mismikil eftir húshlutum, mestu er breytt í vestur-og suðurálmu, en nokkrar breytingar eru einnig í austur-og miðálmu.
Klettaskóli